Björg Magnúsdóttir (f. 9. apríl 1985) er fjölmiðlakona, stjórnmálafræðingur og handritshöfundur sem býður sig fram í prófkjöri Viðreisnar. Hún er fertug fjölskyldukona, býr í 108 Reykjavík í smáíbúðarhverfi með börn á öllum skólastigum, Labrador hund og sambýlismanni.

Björg er með BA-gráðu í stjórnmálafræði og MA í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Á háskólaárum sínum var hún formaður Stúdentaráðs HÍ fyrir Röskvu. Hún hefur jafnframt lokið námi í athafnastjórnun hjá Siðmennt og starfar þar nú sem athafnastjóri.

Stærstan hluta starfsferils síns hefur Björg starfað í fjölmiðlum, bæði á fréttastofum og í dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Hún hefur verið fréttamaður og þáttastjórnandi á RÚV og stýrði meðal annars umræðuþættinum Kappsmál. Auk þess hefur hún starfað sem aðstoðarmaður borgarstjóra Reykjavíkur.

Björg er virkur höfundur og handritshöfundur. Hún hefur skrifað skáldsögurnar Ekki þessi týpa og Þessi týpa og verið einn af handritshöfundum sjónvarpsþáttanna Ráðherrann auk þess að skrifa handrit að þáttaröðinni Vigdísi og fleiri verkefnum fyrir sjónvarp.

Með reynslu úr fjölmiðlum, stjórnmálum, menningu og borgarsamfélaginu leggur Björg áherslu á gagnsæi, frjálsa umræðu, ábyrgð í opinberum rekstri og fjölskylduvæna, frjálslynda stefnu í anda Viðreisnar.