Björg Magnúsdóttir
1. sæti Viðreisnar
Ég óska eftir þínum stuðningi til að leiða lista Viðreisnar í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík.
Ég vil leiða lista Viðreisnar
Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að gefa kost á mér sem oddvita Viðreisnar og leiða listann í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í vor.
Breytingar
Ég skynja sterkt að íbúar Reykjavíkur vilja breytingar. Kerfið er dýrt, flækjustigið er mikið og lögbundin grunnþjónusta er höfuðborginni ekki sæmandi. Fjármál borgarinnar eru ósjálfbær og mælingar sýna síendurtekið að traust til borgarstjórnar er afar lítið. Þetta er sorgleg staða sem ég brenn fyrir að breyta en ég starfaði sjálf í Ráðhúsinu þar til síðasta vor sem aðstoðarmaður borgarstjóra.
Viðreisn er flokkur sem lætur verkin tala. Flokkur sem stendur fyrir frjálslyndi, fagleg vinnubrögð og framfarir.
Hlutverk borgarfulltrúa er að fara vel með útsvarstekjur borgarbúa og forgangsraða. Pólitíkin á að hafa skýra sýn um stóru málin sem brenna hvað mest á borgarbúum. Þetta hlutverk verður að taka alvarlega og nauðsynlegt er að hugsa vel hvaða verkefni eru mikilvægust og hvar takmarkaðir fjármunir nýtast almenningi best. Þjóna verkefnin tilgangi sínum og er réttlætanlegt að verja í þau skattfé? Einfalda þau Reykvíkingum lífið?
Ný kynslóð
Ég vil vera hluti af nýrri kynslóð í borgarstjórn sem er réttu megin við núllið og sinnir vel lögbundnum verkefnum og grunnþjónustu; leik- og grunnskólum, heldur stöðugu framboði af lóðum á markaði, vinnur að því að unga fólkið geti keypt íbúð og einfaldar eins og hægt er leikreglur fyrir uppbyggingaraðila húsnæðis og fólk sem gerist svo djarft að stofna fyrirtæki eða veita þjónustu í borginni.
Um mig
Ég er fertug fjölskyldukona í smáíbúðarhverfinu með börn á öllum skólastigum og í sambúð. Stjórnmálafræðingur með MA í hagnýtri menningarmiðlun en á háskólaárum var ég formaður Stúdentaráðs fyrir Röskvu. Ég hef starfað í fjölmiðlum stærsta hluta ævinnar; á fréttastofum, í útvarpi og sjónvarpi. Ég hef skrifað bækur og sjónvarpsþætti, m.a. Ráðherrann og Vigdísi, en er líka athafnastjóri hjá Siðmennt.
Ég elska Reykjavík og heiti því að gefa mig alla í þetta starf hljóti ég brautargengi. Prófkjörið er 31. janúar og öll sem eru 16 ára og eldri, búsett í Reykjavík og skráð í Viðreisn geta tekið þátt.
Björg Magnúsdóttir